Stjórn og stjórnarhættir

Framkvæmdastjórn HB Granda hf.

Guðmundur Kristjánsson

Guðmundur Kristjánsson

Forstjóri

Jónas Guðbjörnsson

Jónas Guðbjörnsson

Fjármálastjóri

Ægir Páll Friðbertsson

Ægir Páll Friðbertsson

Framkvæmdastjóri

Stjórn HB Granda hf.

Magnús Gústafsson

Stjórnarformaður


Menntun:

Rekstrartæknifræðingur frá Odense Teknikum, Hagræðingarnám.

Fyrst kjörinn í stjórn HB Granda hf.:

4. maí 2018.

Starfsreynsla:

Forstjóri Atlantika INC, í Bandaríkjunum, starfslok 31. maí 2018. Fyrri störf: Aðalræðismaður Íslands í New York, forstjóri Icelandic Inc - Coldwater Seafood, forstjóri Hampiðjunnar hf., Hagræðingarráðunautur.

Önnur stjórnarstörf:

Sat í stjórn Brim hf. Sat í stjórn Promens.

Eignarhlutur í HB Granda hf.:

Kr. 81.689 (0,005%)

Hagsmunatengsl:

Engin hagsmunatengsl hvorki við helstu viðskiptaaðila né samkeppnisaðila félagsins eða hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.

Danielle Pamela Neben

Varaformaður stjórnar


Menntun:

Viðskiptafræðingur frá McGill University í Kanada með áherslu á fjármál.

Fyrst kjörin í stjórn HB Granda hf.:

27. júlí 2018

Starfsreynsla:

Starfar sem markaðsstjóri ePassi á Íslandi. Fyrri störf: Ráðgjafi hjá Maresías slf. og Fidelio Partners (London, England) með áherslu á ráðgjöf í fjárfestatengslum, stjórnarháttum og fyrirtækjaráðgjöf. Framkvæmdastjóri á alþjóðasviði HSBC bankans á árunum 1993-2013. Danielle starfaði í sjö löndum, m.a. í Bretlandi, Þýskalandi, Taívan og Singapore á fyrirtækjasviði, við stjórnun fjárfestatengsla, á einstaklingssviði og við áhættustjórnun. Hún átti sæti í framkvæmdastjórn HSBC Trinkaus & Burkhardt (Int.) SA í Lúxemborg 2012-2013 sem framkvæmdastjóri á rekstrarsviði.

Önnur stjórnarstörf:

Stjórnarmaður hjá Meniga Ltd. og Monerium ehf. Sat í stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu á árunum 2016-2018. Stjórnarmaður hjá Landsbankanum (júlí 2013-febrúar 2017), m.a. formaður endurskoðunarnefndar (2014-2016) og formaður framtíðarnefndar (2016-2017).

Eignarhlutur í HB Granda hf.:

Kr. 0 (0,00%)

Hagsmunatengsl:

Engin hagsmunatengsl, hvorki við helstu viðskiptaaðila né samkeppnisaðila félagsins eða hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.

Anna G. Sverrisdóttir

Stjórnarmaður


Menntun:

Stundaði diplómanám við Ökonomisk Faghögskole í Þrándheimi, með áherslu á endurskoðun og mannauðsmál (er nú hluti af Norges Teknisk Naturvitenskapelige Universitet í Þrándheimi-NTNU) og var áður í Verzlunarskóla Íslands.

Fyrst kjörin í stjórn HB Granda hf.:

28. apríl 2016.

Starfsreynsla:

Sjálfstætt starfandi ráðgjafi, AGMOS ehf., sinnir afmörkuðum verkefnum fyrir Samtök ferðaþjónustunnar SAF. Reynsla úr atvinnulífinu er margvísleg. Hefur einkum unnið við fjármál og framkvæmdastjórn, m.a. hjá eftirfarandi fyrirtækjum: Bláa Lóninu, Laugarvatn Fontana, Viðskiptablaðinu, Vöku-Helgafelli, Íslenska Útvarpsfélaginu (Stöð 2) og Arnarflugi, auk þess að hafa starfað hjá Endurskoðunarskrifstofu Björns og Ara (er nú hluti af Deloitte), Útgerðarfélaginu Hilmi sf. og Landsbankanum.

Önnur stjórnarstörf:

Stjórnarformaður Into the Glacier ehf. Á sæti í stjórnum Hreyfingar ehf., AGMOS ehf. og Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Fyrri stjórnarseta m.a. í eftirfarandi félögum og stofnunum: Lífeyrissjóði verzlunarmanna, Útflutningsráði, Ferðamálaráði, Samtökum ferðaþjónustunnar og Arnarflugi hf. Hefur auk þess verið mjög virk í nokkrum frjálsum félagasamtökum. Hefur einnig sinnt margvíslegum nefndarstörfum fyrir atvinnuvega-, utanríkis-, samgöngu- og umhverfisráðuneyti.

Eignarhlutur í HB Granda hf.:

Kr. 0 (0,00%)

Hagsmunatengsl:

Engin hagsmunatengsl, hvorki við helstu viðskiptaaðila né samkeppnisaðila félagsins eða hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.

Eggert Benedikt Guðmundsson

Stjórnarmaður


Menntun:

Rafmagnsverkfræðingur (Dipl.-Ing.) frá Tækniháskólanum í Karlsruhe, MBA frá IESE viðskiptaháskólanum í Barcelona.

Fyrst kjörinn í stjórn HB Granda hf.:

4. maí 2018.

Starfsreynsla:

Starfar sem ráðgjafi hjá IceCure ehf. Fyrri störf: Forstjóri eTactica ehf., forstjóri N1 hf., forstjóri HB Granda hf., forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Philips Electronics, verkfræðingur hjá Íslenska járnblendifélaginu hf.

Önnur stjórnarstörf:

Stjórnarformaður Hótels Holts, Hausta ehf. Formaður Leikfélags Reykjavíkur.

Eignarhlutur í HB Granda hf.:

Kr. 0 (0,00%)

Hagsmunatengsl:

Engin hagsmunatengsl, hvorki við helstu viðskiptaaðila né samkeppnisaðila félagsins eða hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.

Kristrún Heimisdóttir

Stjórnarmaður


Menntun:

Lögfræðingur, cand.jur. frá Háskóla Íslands. Laga-og heimspekinám í KU Leuven Belgíu og í UCC Cork á Írlandi. Doktorsnám í Bandaríkjunum.

Fyrst kjörin í stjórn HB Granda hf.:

27. júlí 2018.

Starfsreynsla:

Hefur frá 2015 verið rannsóknarfélagi við Columbia University Law School í New York. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins 2013-2014. Lektor við Háskólann á Akureyri frá 2012 og nú gestalektor þar. Aðstoðarmaður efnahags- og viðskiptaráðherra 2010-2012. Lögfræðilegur ráðgjafi velferðarráðherra 2009-2010. Aðstoðarmaður utanríkisráðherra 2007-2009. LEX lögmannsstofa 2006-2007. Lögfræðingur Samtaka iðnaðarins 2002-2006. Valnefnd sigurtillögu vegna samkeppni um byggingu tónlistarhúss í Reykjavík 2005-2006. Kenndi við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst. Framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar. Lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis. Íþróttafréttakona o.fl. hjá RÚV. Starfaði með Thorvald Stoltenberg fyrir hönd Íslands í nefnd um varnarsamstarf Norðurlanda 2008. Í stjórnarskrárnefnd 2005-2007.

Önnur stjórnarstörf:

Í stjórn "Leifur Eiríksson Foundation". Í siðanefnd Knattspyrnusambands Íslands. Varamaður í stjórn Samtaka sparifjáreigenda. Dæmi um fyrri stjórnarstörf: Stjórnarformaður Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, stjórnarformaður Félagsþjónustu kirkjunnar, stjórnarformaður Hlaðvarpans ehf. Ritari stjórnar Íþrótta- og Ólympíusambandsins. Formaður Afrekssjóðs. Stjórn Háskólans í Reykjavík. Samstarfsvettvangur sjávarútvegs og iðnaðar.

Eignarhlutur í HB Granda hf.:

Kr. 0 (0,00%)

Hagsmunatengsl:

Engin hagsmunatengsl, hvorki við helstu viðskiptaaðila né samkeppnisaðila félagsins eða hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.

Hluthafar

Skráð hlutafé HB Granda hf. var 1.822,2 milljónir króna í árslok 2018. Félagið átti í árslok eigin hluti að nafnverði 8,6 milljónir króna, þannig að útistandandi hlutafé nam 1.813,6 milljónum króna. Hluthafar í upphafi árs voru 1.175 en voru 890 í árslok. Í árslok 2018 áttu þrír hluthafar yfir 10% eignarhlut í félaginu en þeir voru Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. sem átti 37,2%, Lífeyrissjóður verslunarmanna sem átti 13,2% og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A-deild sem átti 10,7%.

Gengi hlutabréfa var 33,7 í árslok 2018 en 35,0 í ársbyrjun. Raunávöxtun hlutabréfa á árinu, að meðtöldum arði í félaginu, reyndist vera neikvæð um 4,8%. Þá er miðað við bréf sem keypt var á lokagengi ársins 2017 og selt í lok ársins 2018, að teknu tilliti til greiðslu arðs og verðbólgu á árinu. Sé litið til lengri tíma var raunávöxtun hlutabréfs, sem var keypt í lok árs 1998 og selt um síðustu áramót, um 7,4% á ári að meðaltali.

Skráð viðskipti með hlutabréf í HB Granda hf. námu 34.602 milljónum króna árið 2018. Skráð viðskipti árið 2017 námu 16.865 milljónum króna. Úrvalsvísitala OMX Iceland lækkaði um 1,28% árið 2018 en hækkaði um 0,03% að teknu tilliti til arðgreiðslna.

í millj. kr. %
Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. 674,6 37,2%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 239,9 13,2%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A-deild 194,4 10,7%
Gildi lífeyrissjóður 155,1 8,5%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins B-deild 71,8 4,0%
Birta lífeyrissjóður 71,8 4,0%
Stefnir ÍS 5 51,9 2,9%
Ingimundur Ingimundarson 48,0 2,6%
Eignarhaldsfélagið VGJ ehf. 46,7 2,6%
Stefnir ÍS 15 39,9 2,2%
Aðrir hluthafar 219,5 12,1%
Útistandandi hlutafé 1.813,6 100,0%

Aðalfundur 2018

Aðalfundur HB Granda hf. var haldinn föstudaginn 4. maí 2018. Fundinn sóttu 97 hluthafar sem fóru með 95,7% af hlutafé félagsins, auk gesta.

Formaður stjórnar, Kristján Loftsson, flutti skýrslu stjórnar og gerði grein fyrir rekstri og afkomu félagsins á liðnu starfsári. Vilhjálmur Vilhjálmsson, fyrrverandi forstjóri, kynnti ársreikning HB Granda hf. og gerði grein fyrir ýmsum þáttum starfseminnar á liðnu ári, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tillaga stjórnar um að greidd yrði 0,70 kr. á hlut í arð af hlutafé var samþykkt samhljóða.

Sex aðilar buðu sig fram í kjöri til stjórnar á aðalfundinum. Í stjórn voru kjörin: Anna G. Sverrisdóttir, Eggert Benedikt Guðmundsson, Guðmundur Kristjánsson, Magnús Gústafsson og Rannveig Rist.

Deloitte ehf. var kjörið endurskoðunarfélag.

Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund skipti stjórnin með sér verkum. Guðmundur Kristjánsson var kjörinn formaður og Rannveig Rist varaformaður.

Breytingar á stjórn

Þann 21. júní varð sú breyting á stjórn félagsins að Guðmundur Kristjánsson hætti sem stjórnarformaður og tók við sem forstjóri HB Granda hf. af Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Samhliða var Magnús Gústafsson kjörinn formaður stjórnar.

Í lok júní sagði Rannveig Rist sig úr stjórn HB Granda hf.

Danielle Pamela Neben og Kristrún Heimisdóttir komu nýjar inn í stjórn HB Granda hf. í lok júlí.

Á stjórnarfundi í lok ágúst var Danielle Pamela Neben kjörin varaformaður stjórnar.